Fotbolti.net
23.05.26 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson

Jonny Evans og Steve Holland fá tveggja ára samninga

Jonny Evans og Steve Holland fá tveggja ára samninga
Canon

Mynd: EPA

Eins og greint hefur verið frá er Manchester United búið að gera tveggja ára samning við Michael Carrick eftir magnaða frammistöðu hans sem bráðabirgðaþjálfari félagsins á seinni hluta enska úrvalsdeildartímabilsins.
Þjálfarateymið hans fær einnig tveggja ára samninga en þar má helst nefna Steve Holland og Jonny Evans.

Holland er fyrrum aðstoðarþjálfari Gareth Southgate hjá enska landsliðinu og starfaði sem bráðabirgðaþjálfari Chelsea fyrir rúmum áratugi síðan. Hann var aðstoðarþjálfari manna á borð við Antonio Conte og José Mourinho hjá Chelsea og stýrði Yokohama F. Marinos í japönsku deildinni á síðustu leiktíð.

Evans þarf ekki að kynna fyrir fótboltaunnendum eftir langa dvöl sem leikmaður hjá Man Utd.

Fyrrum enski landsliðsmaðurinn Jonathan Woodgate, sem hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari hjá Middlesbrough og Bournemouth á ferlinum, er einnig partur af þjálfarateyminu sem fær tveggja ára samninga ásamt Travis Binnion og Craig Mawson.

Binnion þekkir mjög vel til hjá Man Utd eftir að hafa verið aðalþjálfari unglingaliða félagsins á meðan Mawson heldur áfram starfi sínu sem markmannsþjálfari eftir sjö ár hjá Rauðu djöflunum.

Man Utd tilkynnir um nýjan samning við Carrick (Staðfest)
TENGT EFNI

Man Utd tilkynnir um nýjan samning við Carrick (Staðfest)

Jonny Evans og Steve Holland fá tveggja ára samninga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.