FRÉTTIR26.06.2025, 11:03
Liverpool hefur tilkynnt um kaup á ungverska vinstri bakverðinum Milos Kerkez sem kemur frá Bournemouth. Hann er 21 árs gamall og hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir langtímasamning við Englandsmeistarana.
<i>„Ég er gríðarlega ánægður. Það er sannur heiðir og forréttindi að koma hingað og spila fyrir eitt stærsta félag heims, stærsta félag Englands. Ég er mjög spenntur,"</i> segir Kerkez sem er keyptur fyrir um 40 milljónir punda.
<i>„Nú mun ég halda heim til Ungverjalands og njóta þess í nokkra daga að vera í fríi. Ég get ekki beðið eftir því að koma til baka, fara í æfingatreyjuna og búa mig undir næsta tímabil."</i>
FRÉTTIR26.06.2025, 08:00
Rob Page, fyrrum landsliðsþjálfari Wales, er tekinn við sem aðalþjálfari U21 árs liðs Liverpool á Englandi en félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni.
FRÉTTIR25.06.2025, 23:30
Nice, sem spilar í efstu deild Frakklands, hefur landað hinum 19 ára gamla Juma Bah á láni frá Manchester City.
FRÉTTIR25.06.2025, 18:00
Nýliðar Burnley hafa fest kaup á þýska U20 landsliðsmarkverðinum Max Weiss frá Karlsruher.
FRÉTTIR25.06.2025, 16:00
Hægri bakvörðurinn Max Aarons hefur gengið í raðir skoska liðsins Rangers á láni frá Bournemouth út komandi tímabil.
Félög í ensku úrvalsdeildinni og Championship sýndu þessum 25 ára leikmanni áhuga.
FRÉTTIR25.06.2025, 10:27
Adam Lallana, fyrrum miðjumaður enska landsliðsins, hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril og er nú hættur að spila, 37 ára gamall.
FRÉTTIR25.06.2025, 10:00
Frakkinn Julien Stephan er formlega tekinn við sem stjóri Queens Park Rangers. Liðið hafnaði í fimmtánda sæti Championship-deildarinnar.
FRÉTTIR25.06.2025, 09:30
Baldvin Már Borgarsson er hættur sem þjálfari Árbæjar í 3. deildar. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.
Baldvin hefur ekki stýrt liðinu eftir að hann losnaði úr leikbanni á dögunum. Hann var dæmdur í fjögurra leikja bann eftir að hann lét ósæmileg orð falla í garð dómara. Hann baðst síðar afsökunar á því og sagðist ætla að læra af því.
FRÉTTIR25.06.2025, 08:20
Cagliari er búið að krækja í þrjá leikmenn í byrjun sumars sem léku allir á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð. Tveir þeirra koma úr röðum Atalanta og einn frá Ítalíumeisturum Napoli.
FRÉTTIR25.06.2025, 07:40
Ítalska stórveldið Inter er búið að festa kaup á pólska kantmanninum Nicola Zalewski eftir að hafa leikið fyrir félagið á láni á seinni hluta síðustu leiktíðar.
FRÉTTIR24.06.2025, 19:56
Ítalska félagið Fiorentina hefur staðfest kaup á Alberti Guðmundssyni, sóknarleikmanni sem var hjá félaginu á lánssamningi frá Genoa á síðustu leiktíð.
FRÉTTIR24.06.2025, 14:00
Það hefur lítið gengið hjá FHL hingað til á tímabilinu en liðið er á botni Bestu deildarinnar án stiga þegar tíu leikir eru búnir.
Það er núna framundan löng EM-pása en það er ljóst að tveir leikmenn munu yfirgefa félagið í þessari pásu. Það er Aida Kardovic, sem sleit krossband fyrr á tímabilinu, og Anna Hurley.
FRÉTTIR24.06.2025, 13:36
Víkingur hefur gefið út tilkynningu þess efnis að félagið ætli í þjálfarabreytingar í kvennaliði félagsins.
Víkingur er í fallsæti núna þegar löng EM-pása hefst en þetta tímabil hefur verið mikil vonbrigði eftir frábær ár. Víkingur varð bikarmeistari 2023 og endaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fyrra.
FRÉTTIR24.06.2025, 10:30
Rob Edwards hefur verið ráðinn nýr stjóri Middlesbrough sem leikur í næst efstu deild Englands.
Tekur hann við starfinu af Michael Carrick sem var rekinn eftir síðasta tímabil. Carrick hafði stýrt liðinu í þrjú tímabil og gert fínustu hluti.
FRÉTTIR24.06.2025, 08:00
Leeds United hefur fest kaup á varnarmanninum Jaka Bijol frá Udinese. Kaupverðið er 22 milljónir evra og hann skrifar undir fimm ára samning.
FRÉTTIR24.06.2025, 07:30
Paul Mullin, framherji Hollywood liðsins Wrexham, er genginn til liðs við Wigan á láni og mun spila fyrir liðið í C-deildinni á næstu leiktíð. Wrexham hafnaði í 2. sæti í C-deildinni og mun því spila í Championship deildinni á næstu leiktíð.
Mullin er gríðarlega vinsæll hjá Wrexham en hann átti frábært tímabil þegar liðið fór upp úr utandeildinni. Hann skoraði 38 mörk í 46 leikjum. Þá skoraði hann 24 mörk í 38 leikjum í D-deildinni.
FRÉTTIR23.06.2025, 18:46
Nat Phillips er genginn til liðs við West Bromwich Albion, sem hafnaði í 9. sæti í Championship deildinni á síðustu leiktíð. Hann kemur frá Liverpool og skrifar undir þriggja ára samning en kaupverðið er ekki gefið upp.
MIðvörðurinn var á láni hjá Derby á síðustu leiktíð þar sem hann lék 32 leiki. Hann gekk ungur að árum til Liverpool frá Bolton og fékk óvænt tækifæri með aðalliðinu tímabilið 2020-2021 og spilaði mikið vegna meiðslavandræða.
FRÉTTIR23.06.2025, 18:00
Crystal Palace hefur nælt í argentíska markmanninn Walter Benitez á frjálsri sölu frá PSV.
Benitez er 32 ára ára en hann var aðalmarkvörður PSV þegar liðið vann hollensku deildina á síðustu leiktíð.
FRÉTTIR21.06.2025, 11:00
Bosníski framherjinn Edin Dzeko er genginn til liðs við Fiorentina frá tyrkneska félaginu Fenerbahce.
FRÉTTIR21.06.2025, 10:18
Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður og sérfræðingur á Sýn Sport, mun taka við þjálfun ÍA út tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta.
ÍA er í neðsta sæti Bestu deildarinnar og var Jón Þór Hauksson látinn taka pokann sinn eftir tap gegn Aftureldingu í síðustu umferð.