Leeds United hefur fest kaup á varnarmanninum Jaka Bijol frá Udinese. Kaupverðið er 22 milljónir evra og hann skrifar undir fimm ára samning.
Bijol er 26 ára gamall Slóveni sem gekk til liðs við Udinese frá CSKA Moskvu árið 2022. Hann lék 95 leiki fyrir ítalska liðið. Þá á hann að baki 63 landsleiki fyrir hönd Slóveníu.
Hann spilaði m.a. hverja einustu mínútu þegar Slóvenía fór alla leið í 16 liða úrslit á EM í fyrra þar sem liðið tapaði gegn Portúgal í vítaspyrnukeppni.
Leeds leikur í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í Championship deildinni á síðustu leiktíð.
Bijol er annar leikmaðurinn sem Leeds nælir í fyrir átökin í úrvalsdeildinni á eftir framherjanum Lukas Nmecha sem gekk til liðs við félagið frá Wolfsburg.
Athugasemdir