Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 11:03
Elvar Geir Magnússon
Milos Kerkez til Liverpool (Staðfest)
Kerkez er orðinn leikmaður Liverpool.
Kerkez er orðinn leikmaður Liverpool.
Mynd: Liverpool
Liverpool hefur tilkynnt um kaup á ungverska vinstri bakverðinum Milos Kerkez sem kemur frá Bournemouth. Hann er 21 árs gamall og hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir langtímasamning við Englandsmeistarana.

„Ég er gríðarlega ánægður. Það er sannur heiðir og forréttindi að koma hingað og spila fyrir eitt stærsta félag heims, stærsta félag Englands. Ég er mjög spenntur," segir Kerkez sem er keyptur fyrir um 40 milljónir punda.

„Nú mun ég halda heim til Ungverjalands og njóta þess í nokkra daga að vera í fríi. Ég get ekki beðið eftir því að koma til baka, fara í æfingatreyjuna og búa mig undir næsta tímabil."

„Ég vil þakka öllum sem hafa sýnt mér mikla ást. Ég mun gefa nákvæmlega allt til að vinna titla með félaginu og vonandi mun ég skora einhver mörk á Anfield. Ég get ekki beðið eftir að heyra fagnaðarlætin."



Athugasemdir