Nice, sem spilar í efstu deild Frakklands, hefur landað hinum 19 ára gamla Juma Bah á láni frá Manchester City.
Bah, sem er landsliðsmaður Síerra Leóné, kom til Man City frá Real Valladolid í byrjun árs og var lánaður til franska liðsins Lens út tímabilið.
Þar spilaði hann 10 leiki þar af sjö í byrjunarliði áður en hann sneri aftur til Manchester.
Nice hefur staðfest að félagið hafi fengið hann á láni frá Man City út tímabilið og mun hann því taka annað ár í Frakklandi.
Nice spilar í Evrópudeildinni á komandi leiktíð eftir að hafa hafnað í 4. sæti frönsku deildarinnar.
Athugasemdir