
Það hefur lítið gengið hjá FHL hingað til á tímabilinu en liðið er á botni Bestu deildarinnar án stiga þegar tíu leikir eru búnir.
Það er núna framundan löng EM-pása en það er ljóst að tveir leikmenn munu yfirgefa félagið í þessari pásu. Það er Aida Kardovic, sem sleit krossband fyrr á tímabilinu, og Anna Hurley.
Það er núna framundan löng EM-pása en það er ljóst að tveir leikmenn munu yfirgefa félagið í þessari pásu. Það er Aida Kardovic, sem sleit krossband fyrr á tímabilinu, og Anna Hurley.
Hurley er bandarískur miðjumaður en hún hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu og ekki náð sér á strik.
FHL hefur ekki gefist upp og ætlar sér að fá leikmenn í staðinn fyrir þær. Félagið er að skoða íslenska markaðinn og þann erlenda.
Næsti leikur FHL er gegn Val eftir mánuð og fær liðið núna nægan tíma til að vinna í sínum málum.
Athugasemdir