Nýliðar Burnley hafa fest kaup á þýska U20 landsliðsmarkverðinum Max Weiss frá Karlsruher.
Weiss er 21 árs gamall og kemur til Burnley fyrir 4,2 milljónir punda, en hann skrifaði undir fjögurra ára samning í dag.
Markvörðurinn, sem er uppalinn hjá Karlsruher, spilaði fyrsta tímabil sitt sem aðalmarkvörður liðsins á síðasta tímabili er það hafnaði í 8. sæti þýsku B-deildarinnar.
Hann á 6 landsleiki með yngri landsliðum Þýskalands.
Samkvæmt ensku miðlunum er hann fenginn inn sem varamarkvörður en er hugsaður sem aðalmarkvörður liðsins í framtíðinni.
A special message for you ???? pic.twitter.com/PMh9SHWVF4
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) June 25, 2025
Athugasemdir