Hægri bakvörðurinn Max Aarons hefur gengið í raðir skoska liðsins Rangers á láni frá Bournemouth út komandi tímabil.
Félög í ensku úrvalsdeildinni og Championship sýndu þessum 25 ára leikmanni áhuga.
Félög í ensku úrvalsdeildinni og Championship sýndu þessum 25 ára leikmanni áhuga.
„Ég hef öðlast mikla reynslu úr ólíkum deildum og spilað marga leiki. Ég tel að ég get komið með nýja orku til Rangers og tel að stuðningsmenn liðsins geti verið spenntir," segir Aarons fullur sjálfstrausts.
Aarons er fyrrum leikmaður Norwich og var sex mánuði á láni hjá Valencia á Spáni á síðasta tímabili. Spænska félagi ákvað að nýta sér ekki ákvæði um að kaupa hann.
???? pic.twitter.com/eLuowP3Vby
— Rangers Football Club (@RangersFC) June 25, 2025
Athugasemdir