Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 13:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
John og Björn reknir frá Víkingi (Staðfest)
Kvenaboltinn
John Andrews.
John Andrews.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn tók við sem aðstoðarþjálfari fyrir tímabilið í ár.
Björn tók við sem aðstoðarþjálfari fyrir tímabilið í ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur hefur gefið út tilkynningu þess efnis að félagið ætli í þjálfarabreytingar í kvennaliði félagsins.

Víkingur er í fallsæti núna þegar löng EM-pása hefst en þetta tímabil hefur verið mikil vonbrigði eftir frábær ár. Víkingur varð bikarmeistari 2023 og endaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fyrra.

„Knattspyrnufélagið Víkingur tilkynnir að John Henry Andrews þjálfari meistaraflokks kvenna og Björn Sigurbjörnsson aðstoðarþjálfari liðsins hafa látið af störfum sem þjálfarar meistaraflokks kvenna," segir í tilkynningunni.

„Það er ákvörðun stjórnar knattspyrnudeildar Víkings að nú sé tímabært að gera breytingar með hagsmuni liðsins og framtíðaruppbyggingu að leiðarljósi. Stjórn knattspyrnudeildar Víkings þakkar John og Birni fyrir samstarfið og óskar þeim velfarnaðar og hamingju í næstu verkefnum."

John tók við þjálfun liðsins í nóvember 2019 og náði frábærum og eftirtektarverðum árangri í sínu starfi. John fékk það mikilvæga verkefni í hendurnar að byggja upp nýjan meistaraflokk kvenna hjá félaginu. Á þessum tíma sigraði liðið Lengjudeildina 2023, varð Mjólkurbikarmeistari árið 2023 og lenti í 3. sæti Bestu deildar kvenna árið 2024.

Björn kom inn í þjálfarateymi liðsins haustið 2024 en hann þjálfaði áður um árabil hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstads DFF og síðan Selfoss áður en hann kom heim í Víking.

„Stjórnin hefur þegar hafið undirbúning að ráðningu nýs þjálfara og verður tilkynnt um framhaldið þegar það liggur fyrir."
Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM
Athugasemdir
banner