Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benitez til Crystal Palace (Staðfest)
Mynd: Crystal Palace
Crystal Palace hefur nælt í argentíska markmanninn Walter Benitez á frjálsri sölu frá PSV.

Benitez er 32 ára ára en hann var aðalmarkvörður PSV þegar liðið vann hollensku deildina á síðustu leiktíð.

Hann mun koma til með að vera varamarkvörður Crystal Palace. Hann verður á eftir Dean Henderson sem var aðalmarkvörður liðsins á síðustu leiktíð.

„Walter er frábær viðbót í hópinn okkar, hann kemur með gæði, reynslu og keppni um markvarðarstöðuna. Við hlökkum til að bjóða Walter velkominn til Suður Lundúna í næsta mánuði þar sem við munum halda áfram að undirbúa okkur fyrir það sem stefnir í að verða viðburðaríkt tímabil, við munum keppa á mörgum vígstöðum," sagði Steve Parish, stjórnarformaður Crystal Palace.
Athugasemdir
banner