Cagliari er búið að krækja í þrjá leikmenn í byrjun sumars sem léku allir á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð. Tveir þeirra koma úr röðum Atalanta og einn frá Ítalíumeisturum Napoli.
Framherjinn Roberto Piccoli kom að 15 mörkum í 40 leikjum á láni hjá Cagliari í fyrra og kemur hann úr röðum Atalanta fyrir um 12 milljónir evra.
Piccoli er 24 ára gamall og var áður fyrr mikilvægur hlekkur í yngri landsliðum Ítala, með 46 leiki að baki.
Miðjumaðurinn Michel Adopo kemur einnig úr röðum Atalanta og kostar um 4 milljónir evra. Hann var fastamaður á miðjunni hjá Cagliari á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að forðast fall.
Að lokum er markvörðurinn Elia Caprile endanlega genginn til liðs við félagið úr röðum Napoli. Hann gerði flotta hluti sem aðalmarkvörður Cagliari þar sem hann fékk 23 mörk á sig í 22 deildarleikjum.
Cagliari greiðir um 8 milljónir til að kaupa Caprile og borgar því í heildina tæplega 25 milljónir evra fyrir þessa þrjá leikmenn.
Cagliari endaði í 15. sæti Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð, með 36 stig úr 38 leikjum - fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir