Frakkinn Julien Stephan er formlega tekinn við sem stjóri Queens Park Rangers. Liðið hafnaði í fimmtánda sæti Championship-deildarinnar.
Stephan, sem er 44 ára gamall, hefur reynslu af þjálfun í frönsku úrvalsdeildinni (Ligue 1), þar sem hann stýrði Rennes og Strasbourg. Með Rennes vann hann frönsku bikarkeppnina árið 2019.
Stéphan segist vera stoltur og spenntur fyrir nýja starfinu: „Það er eitthvað einstakt við enska fótboltann – leikurinn, hraðinn, stemningin og ástríða stuðningsmanna skapa mjög spennandi umhverfi fyrir þjálfara."
QPR átti dapran lokakafla á nýliðnu tímabili og vann aðeins tvo sigra í síðustu tólf leikjum undir stjórn Martí Cifuentes sem síðan var látinn taka pokann sinn.
Athugasemdir