Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum landsliðsþjálfari Wales tekur við U21 árs liði Liverpool (Staðfest)
Mynd: EPA
Rob Page, fyrrum landsliðsþjálfari Wales, er tekinn við sem aðalþjálfari U21 árs liðs Liverpool á Englandi en félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

Page stýrði Port Vale og Northampton í neðri deildunum á Englandi áður en hann ákvað að fara vinna fyrir fótboltasamband Wales.

Hann var þjálfari U21 árs landsliðsins frá 2017 til 2019, en var síðan fenginn inn sem aðstoðarþjálfari Ryan Giggs hjá A-landsliðinu.

Giggs var handtekinn árið 2020, sakaður um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi, og fór því í leyfi frá störfum og var Page gerður að aðalþjálfara til bráðabirgða. Giggs sneri ekki aftur til starfa og sagði á endanum starfi sínu lausu, og Page ráðinn til frambúðar.

Hann náði eftirtektarverðum árangri og kom liðinu meðal annars á HM og það í fyrsta sinn í 62 ár

Á síðasta ári var hann látinn fara eftir að hafa mistekist að koma Wales á Evrópumótið og er hann nú tekinn við U21 árs liði Liverpool.

„Rob kemur inn með haug af reynslu sem fyrrum leikmaður og sem þjálfari sem verður alger lykill í að hjálpa til við að minnka bilið hjá leikmönnum úr því að vera efnilegir yfir í að vera fastamenn í aðalliðinu,“ sagði Alex Inglethorpe, yfirmaður unglingastarfsins.


Athugasemdir