Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Inter kaupir kantmann frá Roma (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ítalska stórveldið Inter er búið að festa kaup á pólska kantmanninum Nicola Zalewski eftir að hafa leikið fyrir félagið á láni á seinni hluta síðustu leiktíðar.

Zalewski er 23 ára gamall og gekk til liðs við Inter á lánssamningi með kaupmöguleika í vetrarglugganum.

Inter borgaði 600 þúsund evrur fyrir lánssamninginn með 6,5 milljón evra kaupmöguleika í sumar. Stórveldið greiðir því í heildina rétt rúmar 7 milljónir fyrir Zalewski sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi við Roma.

Zalewski spilaði um 600 mínútur í 17 leikjum með Inter undir stjórn Simone Inzaghi en nýr þjálfari Cristian Chivu er hrifinn af leikmanninum. Hann tók Zalewski með á HM félagsliða þar sem hann hefur komið við sögu í báðum leikjum Inter hingað til.

Ekki er greint frá samningslengd en fjölmiðlar telja Zalewski gera fjögurra ára samning við Inter eftir að hafa spilað 123 leiki fyrir Roma. Hann á 29 landsleiki að baki fyrir Pólland.


Athugasemdir
banner
banner