FRÉTTIR22.12.2020, 09:45
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið afskaplega góður í síðustu leikjum Everton og er valinn í úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni af BBC.
Það er Garth Crooks sem sér um valið en Everton vann um liðna helgi 2-1 sigur á móti Arsenal þar sem Gylfi lagði upp sigurmarkið úr hornspyrnu. Þetta var sautjánda stoðsending hans úr föstu leikatriði síðan hann kom í ensku úrvalsdeildina.
FRÉTTIR14.12.2020, 09:18
Toppliðin í ensku úrvalsdeildinni misstigu sig í fjörugri umferð um helgina. Garth Crooks á BBC er búinn að henda liði umferðarinnar á blað. Leicester á tvo leikmenn þar og Aston Villa einnig. Crooks spilar 3-4-3 með nokkra sókndjarfa leikmenn á miðjunni.
FRÉTTIR07.12.2020, 12:10
Tottenham vann slaginn gegn Arsenal og er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með betri markatölu en Liverpool sem vann Wolves. Chelsea hafði farið á toppinn á laugardag með 3-1 sigri gegn Leeds United.
Manchester United vann 3-1 sigur gegn West Ham og Manchester City vann sannfærandi 2-0 sigur gegn Fulham. Leicester vann botnlið Sheffield United, Crystal Palace burstaði tíu leikmenn West Brom 5-1 og Burnley gerði 1-1 jafntefli í Íslendingalausum Íslendingaslag.
FRÉTTIR01.12.2020, 12:45
Tottenham er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en liðið gerði markalaust jafntefli gegn Chelsea á sunnudaginn. Meistarararnir í Liverpool gerðu 1-1 jafntefli gegn Brighton, Manchester City rúllaði yfir Burnley, Manchester United vann endurkomusigur gegn Southampton og Úlfarnir unnu Arsenal.
Everton tapaði fyrir Leeds og West Brom vann botnlið Sheffield United sem hefur enn ekki unnið leik. Fulham komst upp úr fallsæti þegar liðið vann Leicester á útivelli og West Ham komst í fimmta sæti með sigri gegn Aston Villa.
FRÉTTIR24.11.2020, 11:00
Tottenham Hotspur er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur gegn erkifjendunum í Manchester City. Englandsmeistarar Liverpool voru í banastuði og unnu 3-0 sigur gegn Leicester City.
Manchester United vann loksins deildarleik á Old Trafford þegar liðið lagði West Brom 1-0 með marki úr vítaspyrnu. Chelsea vann fimmta leik sinn í röð í öllum keppnum og Arsenal gerði markalaust jafntefli gegn Leeds.
Hér er úrvalslið vikunnar í enska boltanum, valið af Garth Crooks hjá BBC.
FRÉTTIR09.11.2020, 11:00
Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur opinberað val sitt á úrvalsliði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni. Ríkjandi Englandsmeistarar í Liverpool gerðu 1-1 jafntefli gegn Manchester City í stórleik helgarinnar.
Leicester komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Úlfunum, Harry Kane skoraði sigurmark Tottenham gegn West Brom, Aston Villa rúllaði 3-0 yfir Arsenal, Manchester United kom til baka gegn Everton og vann 3-1.
Crystal Palace rúllaði yfir Leeds 4-1 og Chelsea vann botnlið Sheffield United með sömu markatölu. West Ham vann nauman sigur á Fulham og markalaust var í botnbaráttuslag Brighton og Burnley.
FRÉTTIR03.11.2020, 10:10
Eins og oft áður leitum við til Garth Crooks, sérfræðings BBC, þegar kemur að vali á liði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool vann West Ham og er á toppnum, Pierre-Emerick Aubameyang skoraði sigurmark Arsenal gegn Manchester United, Gareth Bale tryggði Tottenham sigur gegn Brighton og Fulham vann sinn fyrsta sigur. Newcastle, Manchester City, Chelsea, Wolves og Leicester náðu einnig í stigin þrjú.
FRÉTTIR27.10.2020, 10:40
Liðin umferð í ensku úrvalsdeildinni var leikin á fjórum dögum og <i>Garth Crooks</i> hjá BBC hefur valið úrvalslið vikunnar. Everton tapaði fyrir Southampton, Patrick Bamford skoraði öll þrjú mörk Leeds í 3-0 sigri gegn Aston Villa, West Ham gerði jafntefli gegn Manchester City og markalaust var í stórleik Manchester United og Chelsea.
Liverpool komst upp að hlið Everton á toppnum og Crystal Palace, Leicester og Tottenham unnu góða útisigra og mörk seint í leikjum tryggðu Newcastle og West Brom stig gegn Úlfunum og Brighton.
FRÉTTIR21.10.2020, 12:15
Það var líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Everton og Aston Villa eru enn ósigruð og West Brom og Burnley gerðu fyrsta markalaus jafnteflið. Það var allt morandi í umdeildum atvikum í leik Liverpool og Everton sem endaði 2-2 og Tottenham tapaði niður þriggja marka forystu gegn West Ham í 3-3 leik. Manchester City vann nauman sigur á Arsenal og Manchester United lagði Newcastle.
Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur valið úrvalslið vikunnar.
FRÉTTIR05.10.2020, 10:22
Það er ótrúleg helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham slátraði Manchester United 6-1 og Aston Villa niðurlægði Englandsmeistara Liverpool 7-2. Chelsea vann sannfærandi 4-0 sigur gegn Crystal Palace og Everton er áfram með fullt hús eftir 4-2 sigur gegn Brighton.
Leeds og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli í skemmtilegum leik og Newcastle vann Burnley 3-0. West Ham vann 3-0 sigur gegn Leicester og Southampton vann West Brom 2-0. Úlfarnir unnu Fulham og Arsenal ann 2-1 sigur gegn Sheffield United.
Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur valið úrvalslið vikunnar.
FRÉTTIR29.09.2020, 11:00
Liverpool lagði Arsenal í stórleik helgarinnar en aðeins einn leikmaður liðsins kemst í lið vikunnar að sinni. Leeds United á þrjá fulltrúa, Aston Villa tvo og Manchester United tvo eftir sigra sína. Þar að auki eiga Everton, Southampton og Leicester fulltrúa í liðinu. Garth Crooks hjá BBC sá um valið.
FRÉTTIR22.09.2020, 13:35
Englandsmeistarar Liverpool unnu stórleikinn gegn Chelsea, Everton og Arsenal hafa unnið báða leiki sína, Manchester City fer af stað með sigri en grannarnir í Manchester United töpuðu fyrir Crystal Palace. Hér er lið vikunnar eftir aðra umferð ensku úrvalsdeildarinnar, <i>Mirror</i> sá um valið.
FRÉTTIR15.09.2020, 12:00
Enska úrvalsdeildin er mætt aftur og Arsenal, Liverpool og Chelsea fögnuðu öll sigrum í fyrstu umferð. Meistararnir í Liverpool unnu Leeds United í sjö marka veisluleik. Leicester City og Wolves byrja á sigrum en Jose Mourinho og lærisveinar í Tottenham töpuðu gegn Everton.
Hér er lið vikunnar, <i>Mirror</i> sá um valið.
FRÉTTIR14.07.2020, 12:00
Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur opinberað val sitt á úrvalsliði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni. Það eru aðeins þrjár umferðir eftir af deildinni.
FRÉTTIR10.07.2020, 12:15
Manchester City vann stæsta sigurinn í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem leikin var í vikunni, 5-0 sigur gegn Newcastle. Meistarararnir í Liverpool unnu 3-1 gegn Brighton.
Manchester United lagði Aston Villa auðveldlega 3-0, Chelsea lagði Crystal Palace 3-2 og flautumark Sheffield United tryggði sigur gegn Wolves 1-0.
Arsenal og Leicester gerðu 1-1 jafntefli og sömu úrslit urðu hjá Southampton og Everton.
Watford vann Norwich 2-1, Burnley vann 1-0 gegn West Ham og Tottenham gerði markalaust jafntefli gegn Bournemouth.
Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur valið úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.
FRÉTTIR23.06.2020, 14:30
Loksins er enska úrvalsdeildin farin á fulla ferð aftur. Liverpool gerði markalaust jafntefli gegn Everton og Manchester City rúllaði yfir Burnley 5-0 svo Liverpool þarf að bíða aðeins lengur eftir að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Hér má sjá úrvalslið vikunnar í enska boltanum.
FRÉTTIR09.03.2020, 10:10
Garth Crooks á BBC hefur skilað inn úrvalsliði helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United á þrjá fulltrúa þar eftir sigurinn á Manchester City í gær.
FRÉTTIR02.03.2020, 09:10
Garth Crooks hjá BBC hefur skilað inn liði helgarinnar á Englandi en um er að ræða leikina úr enska deildabikarnum og í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City á tvo menn í liðinu eftir sigurinn í deildabikarnum. Manchester United á tvo menn í liðinu og Watford á þrjá fulltrúa eftir 3-0 sigurinn á Liverpool.
FRÉTTIR25.02.2020, 15:04
27. umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær þegar Liverpool lagði West Ham 3-2. Manchester United á flesta leikmenn í liði umferðarinnar hjá whoscored.com eða þrjá talsins eftir 3-0 sigurinn á Watford.
FRÉTTIR03.02.2020, 13:12
Forysta Liverpool í ensku úrvalsdeildinni jókst um helgina en liðið vann 4-0 sigur gegn Southampton. Tottenham vann Manchester City og Leicester gerði jafntefli gegn Chelsea. Hér er úrvalslið vikunnar en það kemur eins og oft áður úr smiðju Garth Crooks hjá BBC.