Lið vikunnar í enska - James, Willian og Salah í liðinu
Hér er lið vikunnar, Mirror sá um valið.

Vicente Guaita (Crystal Palace) - Átti frábærar markvörslur í sigri gegn Southampton.

Mynd: Getty Images

Timothy Castagne (Leicester City) - Fenginn til að fylla skarð Ben Chilwell og skoraði í fyrstu umferð.

Mynd: Getty Images

Romain Saiss (Wolves) - Skoraði með skalla í sigri gegn Sheffield United.

Mynd: Getty Images

Gabriel Magalhaes (Arsenal) - Brasilíski varnarmaðurinn sem kom frá Lille stimplaði sig inn með marki gegn Fulham.

Mynd: Getty Images

Tariq Lamptey (Brighton) - Kom upp úr unglingastarfi Chelsea og var magnaður gegn sínu fyrrum félagi, varnar- og sóknarlega. Dugði þó ekki til.

Mynd: Getty Images

James Rodriguez (Everton) - Átti flotta frumsýningu í ensku úrvalsdeildinni.

Mynd: Getty Images

Mateusz Klich (Leeds) - Þrátt fyrir tap þá heillaði Klich með kraftmiklum leik og marki.

Mynd: Getty Images

Jeff Hendrick (Newcastle) - Kom á frjálsri sölu frá Burnley og var frábær í fyrsta leik með nýju liði. Lagði upp mark og skoraði í sigri gegn West Ham.

Mynd: Getty Images

Willian (Arsenal) - Sýndi sköpunarmátt sinn og stimplaði sig vel inn hjá nýju félagi.

Mynd: Getty Images

Jamie Vardy (Leicester City) - Markakóngur síðasta tímabils er strax byrjaður að skora.

Mynd: Getty Images

Mohamed Salah (Liverpool) - Þrenna gegn Leeds. Það eru fáir í heiminum betri en hann í dag.

Mynd: Getty Images




