Lið vikunnar í enska - Pogba, Son og Kane í liðinu
Manchester United vann 3-1 sigur gegn West Ham og Manchester City vann sannfærandi 2-0 sigur gegn Fulham. Leicester vann botnlið Sheffield United, Crystal Palace burstaði tíu leikmenn West Brom 5-1 og Burnley gerði 1-1 jafntefli í Íslendingalausum Íslendingaslag.

Nick Pope (Burnley) - Átti fimm markvörslur gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Fabinho (Liverpool) - Úlfarnir áttu lélegan dag gegn Liverpool en Fabinho var eins og kóngur í vörn Liverpool.

Mynd: Getty Images

Kurt Zouma (Chelsea) - Hefur verið gríðarlega öflugur varnarlega og er auk þess kominn með fjögur mörk í tíu leikjum!

Mynd: Getty Images

Eric Dier (Tottenham) - Þriðju vikuna í röð í liði umferðarinnar. Hefur leikið frábærlega undir Mourinho.

Mynd: Getty Images

Kevin de Bruyne (Manchester City) - Tætti Fulham í sig. Mark og stoðsending hjá Belganum.

Mynd: Getty Images

Pierre-Emile Höjbjerg (Tottenham) - Hefur reynst frábær kaup og komið mörgum stuðningsmönnum á óvart.

Mynd: Getty Images

Paul Pogba (Manchester United) - Bruno Fernandes átti frábæra innkomu hjá United en Pogba er fulltrúinn í úrvalsliðinu.

Mynd: Getty Images

Georginio Wijnaldum (Liverpool) - Skoraði eitt af mörkum Liverpool gegn Úlfunum.

Mynd: Getty Images

Son Heung-min (Tottenham) - Son og Harry Kane hafa saman búið til 31 úrvalsdeildarmark.

Mynd: Getty Images

Harry Kane (Tottenham) - Hefur skorað ellefu mörk í Norður-Lundúnaslögum gegn Arsenal.

Mynd: Getty Images

Wilfried Zaha (Crystal Palace) - Skoraði tvö mörk og lagði eitt upp.

Mynd: Getty Images


Mynd: BBC




