Fotbolti.net
09.11.20 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - Þrír fulltrúar Man Utd

Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur opinberað val sitt á úrvalsliði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni. Ríkjandi Englandsmeistarar í Liverpool gerðu 1-1 jafntefli gegn Manchester City í stórleik helgarinnar.

Leicester komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Úlfunum, Harry Kane skoraði sigurmark Tottenham gegn West Brom, Aston Villa rúllaði 3-0 yfir Arsenal, Manchester United kom til baka gegn Everton og vann 3-1.

Crystal Palace rúllaði yfir Leeds 4-1 og Chelsea vann botnlið Sheffield United með sömu markatölu. West Ham vann nauman sigur á Fulham og markalaust var í botnbaráttuslag Brighton og Burnley.
Markvörður: Kasper Schmeichel (Leicester City) - Var á tánum þegar á þurfti að halda og hélt marki sínu hreinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Vörn: Harry Maguire (Manchester United) - Eftir erfiða byrjun á timabilinu hefur Maguire náð vopnum sínum og var hrikalega traustur gegn Everton.

Vörn: Thiago Silva (Chelsea) - Brasilíumaðurinn reynslumikli skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark.

Vörn: Jonny Evans (Leicester City) - Hafði í nægu að snúast gegn Úlfunum en stóð vaktina með mikilli prýði.

Miðja: Hakim Ziyech (Chelsea) - Sýndi gæði sín og sköpunarmátt trekk í trekk.

Miðja: Fred (Manchester United) - Veitti Bruno Fernandes frábæran stuðning á miðsvæðinu.

Miðja: Bruno Fernandes (Manchester United) - Skoraði tvívegis gegn Everton og er nú kominn með tíu mörk og fimm stoðsendingar í tíu fyrstu útileikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.

Miðja: Ross Barkley (Aston Villa) - Nýtur sín í botn hjá Aston Villa og átti geggjaða stoðsendingu á Ollie Watkins.

Sókn: Eberechi Eze (Crystal Palace) - Englendingurinn ungi sem keyptur var frá QPR opnaði markareikning sinn með framúrskarandi aukaspyrnumarki.

Sókn: Harry Kane (Tottenham) - Hetjan gegn West Brom, skoraði sitt 150. úrvalsdeildarmark.

Sókn: Ollie Watkins (Aston Villa) - Er að eignast marga nýja aðdáendur og skoraði tvö gegn Arsenal. Þvílík og önnur eins innkoma í ensku úrvalsdeildina.

Sókn: Ollie Watkins (Aston Villa) - Er að eignast marga nýja aðdáendur og skoraði tvö gegn Arsenal. Þvílík og önnur eins innkoma í ensku úrvalsdeildina.

Canon

Mynd: Getty Images

Lið vikunnar í enska - Þrír fulltrúar Man Utd
Canon

Mynd: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.