Lið vikunnar í enska - Gabriel og Partey frá Arsenal
Liverpool vann West Ham og er á toppnum, Pierre-Emerick Aubameyang skoraði sigurmark Arsenal gegn Manchester United, Gareth Bale tryggði Tottenham sigur gegn Brighton og Fulham vann sinn fyrsta sigur. Newcastle, Manchester City, Chelsea, Wolves og Leicester náðu einnig í stigin þrjú.

Kasper Schmeichel (Leicester) - Tók mikilvægar vörslur í sigrinum gegn Leeds.

Mynd: Getty Images

Kyle Walker (Manchester City) - Skoraði sigurmarkið gegn Sheffield United.

Mynd: Getty Images

Kurt Zouma (Chelsea) - Skoraði hörkuskallamark í sigrinum gegn Burnley.

Mynd: Getty Images

Gabriel (Arsenal) - Hjartað í varnarleik Arsenal gegn United. Var gríðarlega mikilvægur.

Mynd: Getty Images

James Ward-Prowse (Southampton) - Hélt upp á afmæli sitt með tveimur mörkum í mögnuðum sigurleik gegn Aston Villa.

Mynd: Getty Images

Thomas Partey (Arsenal) - Geggjaður á miðjunni og hleypti United ekkert áleiðis.

Mynd: Getty Images

Jordan Henderson (Liverpool) - Fyrirliðinn leiddi Liverpool í gegnum erfiðan leik gegn West Ham.

Mynd: Getty Images

Hakim Ziyech (Chelsea) - Skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmarka í sigrinum gegn Burnley.

Mynd: Getty Images

Daniel Podence (Wolves) - Skoraði og var sífellt ógnandi gegn Crystal Palace.

Mynd: Getty Images

Jamie Vardy (Leicester) - Leeds átti hreinlega engin svör gegn honum.

Mynd: Getty Images

Callum Wilson (Newcastle) - Skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Everton.

Mynd: Getty Images




