Fotbolti.net
22.12.20 - 09:45
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - Gylfi í liði BBC

Lið vikunnar í enska - Gylfi í liði BBC
Canon

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið afskaplega góður í síðustu leikjum Everton og er valinn í úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni af BBC.

Það er Garth Crooks sem sér um valið en Everton vann um liðna helgi 2-1 sigur á móti Arsenal þar sem Gylfi lagði upp sigurmarkið úr hornspyrnu. Þetta var sautjánda stoðsending hans úr föstu leikatriði síðan hann kom í ensku úrvalsdeildina.
Liverpool styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með því að vinna 7-0 sigur gegn Crystal Palace á laugardaginn og fylgdi þar með eftir sigri gegn Tottenham í toppslagnum.

Leicester vann 2-0 sigur gegn Tottenham og komst upp í annað sæti deildarinnar og Manchester United er í því þriðja eftir að hafa unnið Sheffield United og skellt svo Leeds 6-2.

Aston Villa vann West Brom sannfærandi og Manchester City lagði Southampton 1-0 á útivelli.
Emiliano Martínez (Aston Villa) - Hefur haldið marki sínu hreinu oftast markvarða í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Emiliano Martínez (Aston Villa) - Hefur haldið marki sínu hreinu oftast markvarða í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Joel Matip (Liverpool) - Hefur leikið vel í vörn Liverpool og er hrikalega öflugur í loftinu.

Thiago Silva (Chelsea) - Skoraði eftir hornspyrnu gegn West Ham.

Tyrone Mings (Aston Villa) - Villa elskar að halda hreinu og Mings er algjör lykilmaður í því.

Jordan Henderson (Liverpool) - Frábær vika hjá fyrirliðanum. Skoraði í stórsigrinum gegn Palace.

Bruno Fernandes (Manchester United) - Enn og aftur er hann drifkrafturinn á bak við sigurleiki Manchester United.

Scott McTominay (Manchester United) - Skoraði tvö mörk á fyrstu þremur mínútum leiksins gegn Leeds.

Gylfi Þór Sigurðsson (Everton) - Hefur stigið verulega upp með Everton þar sem hann hefur borið fyrirliðabandið. Hefur leitt liðið í sterkum sigurleikjum.

Mohamed Salah (Liverpool) - Kom af bekknum gegn Palace, skoraði tvö mörk og lagði eitt upp.

Jamie Vardy (Leicester) - Skoraði í sigri Leicester gegn Tottenham.

Roberto Firmino (Liverpool) - Var stórkostlegur gegn Palace. Tvö mörk og stoðsending. Er nú kominn með 62 mörk og 38 stoðsendingar í úrvalsdeildinni = 100.

Roberto Firmino (Liverpool) - Var stórkostlegur gegn Palace. Tvö mörk og stoðsending. Er nú kominn með 62 mörk og 38 stoðsendingar í úrvalsdeildinni = 100.

Canon

Mynd: Getty Images

Lið vikunnar í enska - Gylfi í liði BBC
Canon

Mynd: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.