Lið vikunnar í enska - Mane, Kane og Bamford fremstir
Liverpool komst upp að hlið Everton á toppnum og Crystal Palace, Leicester og Tottenham unnu góða útisigra og mörk seint í leikjum tryggðu Newcastle og West Brom stig gegn Úlfunum og Brighton.

Edouard Mendy (Chelsea) - Það er of snemmt að fella stóra dóma en Mendy er kannski búinn að laga helsta hausverk Lampard.

Mynd: Getty Images

Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Var í stuði gegn Sheffield United og átti margar öflugar sendingar.

Mynd: Getty Images

Thiago Silva (Chelsea) - Brasilíumaðurinn reyndi kemur með mikla ró og yfirvegun í öftustu línu.

Mynd: Getty Images

Luke Ayling (Leeds) - Fyrirliðinn lék í hjarta varnarinnar og bjargaði á línu þegar staðan var markalaus.

Mynd: Getty Images

Wilfried Zaha (Crystal Palace) - Skoraði fimmta mark sitt á tímabilinu gegn Fulham.

Mynd: Getty Images

James Ward-Prowse (Southampton) - Heldur áfram að blómstra undir stjórn Hasenhuttl.

Mynd: Getty Images

Phil Foden (Manchester City) - Kom hungraður og ákveðinn af bekknum gegn West Ham og skoraði.

Mynd: Getty Images

Michail Antonio (West Ham) - Skoraði gegn City. Sá hefur reynst Hömrunum vel.

Mynd: Getty Images

Harry Kane (Tottenham) - Bjargaði á línu og átti stoðsendinguna á Son í 1-0 útisigrinum gegn Burnley.

Mynd: Getty Images

Patrick Bamford (Leeds) - Skroaði frábæra þrennu gegn Aston Villa á föstudaginn.

Mynd: Getty Images

Sadio Mane (Liverpool) - Átti stóran þátt í báðum mörkum Liverpool gegn Sheffield United.

Mynd: Getty Images




