FRÉTTIR01.07.2026, 13:55
Þórir Jóhann Helgason (2000) er nýr leikmaður ítalska félagsins Venezia en hann kemur á frjálsri sölu frá Lecce þar sem hann hefur verið síðustu fimm árin, en sumarið 2021 var hann keyptur af FH. Miðjumaðurinn skrifar undir þriggja ára samning. Þórir hafði verið orðaður við Venezia í janúarglugganum og er nú mættur til Feneyja.
Venezia fór upp úr ítölsku B-deildinni í vetur og verður því í Serie A, úrvalsdeildinni, á komandi tímabili. Liðið féll úr úrvalsdeildinni tímabilið 2024/25.
Hafnfirðingurinn spilaði 72 leiki með Lecce, skoraði eitt mark og lagði upp fimm. Tímabilið 2023/24 var hann á láni hjá Eintracht Braunschweig í Þýskalandi og kom þar að sjö mörkum í 27 leikjum.
Alls á Þórir Jóhann að baki 41 leik í efstu deild á Ítalíu en á liðnu tímabili kom hann einungis við sögu í átta deildarleikjum þegar Lecce náði að halda sæti sínu í efstu deild. Þórir Jóhann á að baki 20 A-landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk. Síðast var Þórir í landsliðshópnum í október í fyrra.
FRÉTTIR01.07.2026, 13:41
Chelsea hefur tilkynnt um kaup sín á Marco Palestra frá Atalanta og hefur verið fjallað um að alls geti Atalanta fengið um 43 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Palestra er varnarmaður sem spilar á hægri hlið vallarins og skrifar undir sjö ára samning í Lundúnum.
FRÉTTIR30.06.2026, 21:43
Ronald Koeman hefur sagt af sér sem þjálfari hollenska landsliðsins eftir mikil vonbrigði á HM. Liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Marokkó í nótt.
FRÉTTIR30.06.2026, 21:27
Hrannar Bogi Jónsson er hættur sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Félagið greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.
Jökull Elísabetarson var rekinn sem þjálfari Stjörnunnar fyrr í þessum mánuði en Hrannar var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins fyrir þetta tímabil. Jón Þór Hauksson var ráðinn í stað Jökuls.
FRÉTTIR30.06.2026, 19:28
Frank Lampard, stjóri Coventry, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2029.
Lampard tók við liðinu í nóvember 2024. Liðið var þá í 17. sæti í Championship deildinni enhann stýrði liðinu í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.
FRÉTTIR30.06.2026, 18:31
Pascal Stuijk er genginn til liðs við Brighton frá Leeds fyrir 18 milljónir punda. Hann skrifar undir fimm ára samning.
Leeds greinir frá því að félagið fái ákveðna upphæð ef hann verður seldur frá Brighton.
FRÉTTIR30.06.2026, 16:39
Ansu Fati hefur verið keyptur til Mónakó frá Barcelona fyrir tæpar tíu milljónir punda.
Fati tók við tíunni af Lionel Messi hjá Barcelona aðeins nítján ára gamall árið 2021 og var honum ætlað að vera næsta stórstjarna Börsunga.
Ferill Fati hefur einkennst af miklum meiðslum og hefur hann ekki náð þeim hæðum sem vonast var til.
FRÉTTIR30.06.2026, 16:30
Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni tilkynnti í dag að félagið væri búið að semja við nýjan markvörð.
Það vekur athygli að markvörðurinn kemur úr botnliði Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar á Íslandi.
Tea Lundmark er farin til Svíþjóðar frá Tindastóli þar sem markvörður Vittsjö meiddist illa á hné.
FRÉTTIR30.06.2026, 15:00
Ítalíumeistarar Inter hafa staðfest að fjórir leikmenn yfirgefi félagið eftir að samningar þeirra runnu út. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Yann Sommer, Stefan de Vrij, Francesco Acerbi og Matteo Darmian.
Félagið staðfest brotthvarf leikmannana með tilkynningu fyrr í dag.
FRÉTTIR30.06.2026, 14:58
Portúgalski framherjinn Goncalo Ramos hefur gengið í raðir AC Milan frá PSG. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.
Stjörnublaðamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því að kaupverðið geti náð allt að 74 milljónum evra.
Það mesta sem félagið hafði greitt fyrir leikmann var 50 milljónir evra þegar samlandi Ramos, Rafael Leao, var keyptur árið 2019.
FRÉTTIR30.06.2026, 06:00
Manuel Neuer lék sinn síðasta landsleik með Þjóðverjum er þeir duttu óvænt út í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær.
FRÉTTIR29.06.2026, 20:24
Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski er genginn í raðir Chicago Fire, sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Hann skrifaði undir tveggja ára samning.
FRÉTTIR29.06.2026, 20:07
Argentínumaðurinn Nico Paz verður áfram í herbúðum Como á Ítalíu en staðfesti félagið í kvöld.
FRÉTTIR29.06.2026, 18:05
Nýliðar Coventry City hafa fest kaup á nígeríska miðjumanninum Frank Onyeka frá Brentford, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
FRÉTTIR29.06.2026, 13:14
Manchester City hefur náð samkomulagi um bótagreiðslur til Chelsea til að geta ráðið Enzo Maresca sem nýjan stjóra.
Maresca var fyrsti kostur City til að taka við af Pep Guardiola en hann var aðstoðarmaður hans hjá félaginu um tíma. Maresca hefur verið formlega kynntur hjá City.
FRÉTTIR29.06.2026, 12:22
Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari Vals og mun Chris Brazell, aðstoðarmaður hans, stýra liðinu út tímabilið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlíðarendafélaginu.
Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, tekur svo við Valsliðinu þann 1. nóvember.
Valur er í fimmta sæti Bestu deildarinnar en liðið vann Þór í gær, í síðasta leik Hermanns með stjórnartauma liðsins.
FRÉTTIR29.06.2026, 09:34
Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson hefur verið seldur frá sænska félaginu Malmö og er genginn í raðir Kalamata á Grikklandi.
Kalamata vann grísku B-deildina á liðnu tímabili og spilar í efstu deild á komandi tímabili.
Samningur Arnórs við Malmö rennur út eftir næsta tímabil og greiðir gríska félagið fyrir Arnór, að því er segir í tilkynningu Malmö.
FRÉTTIR28.06.2026, 16:54
Hong Myung-bo hefur sagt starfi sínu sem landsliðsþjálfari Suður-Kóreu lausu eftir vonbrigðin á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
FRÉTTIR28.06.2026, 12:25
Mosfellingurinn Jason Daði Svanþórsson er genginn í raðir KR frá Grimsby Town. Hann skrifaði undir samning út 2027.
FRÉTTIR27.06.2026, 21:30
Mathys Detourbet er genginn til liðs við Man City en franska félagið Troyes greinir frá félagaskiptunum.
Samkvæmt heimildum franska miðilsins L'Equipe kaupir City hann fyrir rúmlega 20 milljónir punda. Þá kemur fram að hann verði hjá Mónakó á láni á næstu leiktíð.