Fjórir stórir póstar yfirgefa Inter (Staðfest)

Yann Sommer hefur varið mark Inter síðustu þrjú tímabil.

Mynd: EPA

Íhugar að leggja skóna á hilluna.

Ítalíumeistarar Inter hafa staðfest að fjórir leikmenn yfirgefi félagið eftir að samningar þeirra runnu út. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Yann Sommer, Stefan de Vrij, Francesco Acerbi og Matteo Darmian.
Félagið staðfest brotthvarf leikmannana með tilkynningu fyrr í dag.

Sommer hefur verið aðalmarkvörður liðsins undanfarin þrjú ár en í hans stað er félagið að sækja Ivan Provedel frá Lazio.
Acerbi, sem er 38 ára varnarmaður, spilaði átján leiki með félaginu í deild á tímabilinu.
Þá var Hollendingurinn de Vrij í minna hlutverki en hann spilaði ellefu leiki á tímabilinu. Hann hefur verið á mála hjá Inter í átta ár og hefur spilað tæplega 300 leiki fyrir félagið.
Matteo Darmian var í enn minna hlutverki en hann spilaði einungis sex leiki í deild á tímabilinu.
Greint hefur verið frá því að þessi 36 ára bakvörður sé að íhuga að leggja skóna á hilluna. Hann er hvað þekktastur fyrir tímann sinn hjá Man Utd frá 2015 til 2019.