Fotbolti.net
30.06.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Úr botnliði Lengjudeildarinnar í sænsku úrvalsdeildina (Staðfest)

Úr botnliði Lengjudeildarinnar í sænsku úrvalsdeildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Tindastóll

Hertz
Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni tilkynnti í dag að félagið væri búið að semja við nýjan markvörð.

Það vekur athygli að markvörðurinn kemur úr botnliði Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar á Íslandi.

Tea Lundmark er farin til Svíþjóðar frá Tindastóli þar sem markvörður Vittsjö meiddist illa á hné.
Tea er sænsk og gekk í raðir Tindastóls fyrir tímabilið. Hún varði mark Tindastóls í fimm leikjum í Lengjudeildinni og fékk á sig 24 mörk.

Lundmark er 29 ára gömul og lék með Sunnana í B-deildinni í Svíþjóð áður en hún samdi við Tindastól.

Hún er hokin af reynslu og verið á mála hjá félögum á borð við Piteå, Eskilstuna og Umeå.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.