Fotbolti.net
29.06.26 - 13:14
Elvar Geir Magnússon

Maresca kynntur hjá Man City (Staðfest)

Enzo Maresca, nýr stjóri City.

Enzo Maresca, nýr stjóri City.

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur náð samkomulagi um bótagreiðslur til Chelsea til að geta ráðið Enzo Maresca sem nýjan stjóra.

Maresca var fyrsti kostur City til að taka við af Pep Guardiola en hann var aðstoðarmaður hans hjá félaginu um tíma. Maresca hefur verið formlega kynntur hjá City.
Maresca var ekki búinn með samning sinn hjá Chelsea og því þurfti City að ná samkomulagi við félagið. Það er í höfn og Maresca búinn að skrifa undir þriggja ára samning. Samkvæmt frétt BBC borgar City um 17 milljónir punda til Chelsea.

Þetta er í þriðja sinn sem Maresca er ráðinn til City. Hann þjálfaði unglingalið félagsins 2020 og tók svo við Parma á Ítalíu. Hann kom aftur til City 2022 í teymið hjá Guardiola sem vann þrennuna mögnuðu 2023.

Maresca var þá ráðinn til Leicester þar sem hann stýrði liðinu til sigurs í Championship-deildinni áður en hann tók við Chelsea. Á fyrsta tímabili sínu hjá Chelsea stýrði hann liðinu til sigurs í Sambandsdeildinni og kom liðinu í Meistaradeildina. Áður en hann stýrði liðinu til sigurs á HM félagsliða. Maresca sagði svo upp hjá Chelsea í desember.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.