Koeman segir af sér (Staðfest) - „Enginn vonsviknari en ég"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ronald Koeman hefur sagt af sér sem þjálfari hollenska landsliðsins eftir mikil vonbrigði á HM. Liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Marokkó í nótt.

TENGT EFNI
Hraunar yfir Van Dijk - „Hans tími er liðinn“
„Við öll dreymdum um heimsmeistarakeppni þar sem við myndum skrifa söguna. Það gekk ekki eftir. Enginn er vonsviknari yfir því en ég. Sem þjálfari ber maður þá ábyrgð. Ég hef alltaf fundið fyrir því og mun alltaf halda því áfram," skrifaði Koeman í langa yfirlýsingu á Instagram.
„Ég vil þakka öllum leikmönnunum sem ég hafði þann heiður að vinna með. Framlag ykkar, karakter og sjálfstraust hefur hvatt mig áfram á hverjum degi. Þakkir einnig til starfsfólks míns, fótboltasambandsins, allra starfsmanna á bak við tjöldin og félaganna sem hafa leyft mér að vinna með sér. En umfram allt þakka ég stuðningsmönnunum. Fyrir að vera stuðningsríkir jafnvel á erfiðum tímum. Það var mikill heiður að fá að vera þjálfari Hollands."
Hann var landsliðsþjálfari Hollands frá 2018-2020. Hann tók aftur við árið 2023 og stýrði liðinu á EM 2024 þar sem liðið tapaði gegn Englandi í undanúrslitum.