Fotbolti.net
01.07.26 - 13:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrstu kaup Alonso klár (Staðfest) - Krækir í besta varnarmann ítölsku deildarinnar

Fyrstu kaup Alonso klár (Staðfest) - Krækir í besta varnarmann ítölsku deildarinnar
Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur tilkynnt um kaup sín á Marco Palestra frá Atalanta og hefur verið fjallað um að alls geti Atalanta fengið um 43 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Palestra er varnarmaður sem spilar á hægri hlið vallarins og skrifar undir sjö ára samning í Lundúnum.
Hann er 21 árs ítalskur landsliðsmaður sem var einnig orðaður við Ítalíumeistarana í Inter. Hann var valinn besti varnarmaður ítölsku deildarinnar í vetur en hann lék á láni hjá Cagliari frá Atalanta.

Palestra er fyrsti leikmaðurinn sem Xabi Alonso, nýr stjóri Chelsea, kaupir.

„Það var margt sem sannfærði mig að Chelsea væri rétta skrefið, félagið er eitt það stærsta í heiminum. Alonso spilar lykilhlutverk. Ég finn fyrir mikilli orku frá honum. Hann er einn besti stjóri heims, það sást þegar hann vann titla með Bayer Leverkusen. Það er mikilvægt fyrir mig að hann sé stjóri liðsins. Ég átti tvö samtöl við hann og ég ánægður því hann sagðist vilja fá mig. Ég er spenntur að kynnast honum betur og byrja að æfa með Chelsea," segir Palestra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.