Fotbolti.net
29.06.26 - 18:05
Brynjar Ingi Erluson

Nýliðarnir gera félagaskipti Onyeka varanleg (Staðfest)

Nýliðarnir gera félagaskipti Onyeka varanleg (Staðfest)
Canon

Mynd: Coventry City

Nýliðar Coventry City hafa fest kaup á nígeríska miðjumanninum Frank Onyeka frá Brentford, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Onyeka, sem er 28 ára gamall, kom til Coventry á láni frá Brentford í febrúar og hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild í fyrsta sinn í 25 ár.

Kaupákvæði var í lánssamningnum og hefur Coventry virkjað það. Onyeka mun formlega ganga í raðir félagsins 1. júlí.

„Ég er spenntur fyrir komandi leiktíð með Coventry. Þegar ég kom til félagsins á síðustu leiktíð var ég með tvö markmið í huga; að vinna ensku B-deildina og hjálpa Coventry að komast upp í úrvalsdeildina. Nú er ég ánægður með að vera leikmaður Coventry, sem mun spila í úrvalsdeildinni.“

„Ég mun gefa allt mitt fyrir liðið, berjast um alla bolta með liðsfélögum mínum og koma með mína reynslu. Nú vil ég hjálpa félaginu að halda sæti sínu í deildinni og reyna að enda eins ofarlega og mögulegt er,“ sagði Onyeka.

Nígeríumaðurinn spilaði 14 leiki með Coventry á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.