Hrannar Bogi hættur hjá Stjörnunni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrannar Bogi Jónsson er hættur sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Félagið greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.
Jökull Elísabetarson var rekinn sem þjálfari Stjörnunnar fyrr í þessum mánuði en Hrannar var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins fyrir þetta tímabil. Jón Þór Hauksson var ráðinn í stað Jökuls.

Hrannar var áður leikmaður og þjálfari Augnabliks en hann var fyrirliði liðsins þegar Jökull var þjálfari hjá Kópavogsliðinu.
„Knattspyrnudeild þakkar Hrannari kærlega fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar og góðs gengis í þeim verkefnum sem fram undan eru," segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Stjarnan er í 8. sæti með 14 stig eftir þrettán umferðir en liðið vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Jóns Þórs um helgina þegar liðið lagði KA 3-1.