Fotbolti.net
29.06.26 - 09:34
Kári Snorrason

Arnór Sig seldur til Grikklands (Staðfest)

Á að baki 36 landsleiki.

Á að baki 36 landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson hefur verið seldur frá sænska félaginu Malmö og er genginn í raðir Kalamata á Grikklandi.

Kalamata vann grísku B-deildina á liðnu tímabili og spilar í efstu deild á komandi tímabili.

Samningur Arnórs við Malmö rennur út eftir næsta tímabil og greiðir gríska félagið fyrir Arnór, að því er segir í tilkynningu Malmö.
Hann hafði verið á mála hjá Malmö í rúmt ár en hann gekk til liðs við félagið frá Blackburn í Englandi. Arnór hefur verið að glíma við mikil meiðsli undanfarið ár og hefur því verið í takmörkuðu hlutverki.

Arnór kom inn á í vináttulandsleiknum gegn Argentínu fyrr í mánuðinum sem var hans 36. landsleikur. Í aðdraganda leiksins hafði hann ekki spilað í rúman mánuð með Malmö.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.