Fotbolti.net
29.06.26 - 20:24
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Lewandowski til Bandaríkjanna (Staðfest)

Lewandowski til Bandaríkjanna (Staðfest)
Canon

Mynd: Chicago Fire

Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski er genginn í raðir Chicago Fire, sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Hann skrifaði undir tveggja ára samning.
Samningur Lewandowski við Barcelona rann út eftir síðustu leiktíð og ljóst var að hann yrði ekki áfram hjá félaginu.

Hann hefur átt í viðræðum við Chicago Fire síðustu vikur og hefur bandaríska félagið nú staðfest komu hans.

Pólski framherjinn, sem er 37 ára gamall, hefur skorað yfir 700 mörk á ferli sínum og er því um mikinn feng að ræða fyrir Chicago Fire. Á síðustu leiktíð skoraði hann 19 mörk og gaf fjórar stoðsendingar í öllum keppnum með Börsungum.

Margar stórstjörnur hafa spilað fyrir Chicago Fire í gegnum tíðina. Þar má nefna Bastian Schweinsteiger og Hristo Stoichkov. Þá lék mexíkóska goðsögnin Cuauhtemoc Blanco einnig með félaginu, sem og Brian McBride og DeMarcus Beasley, fyrrum landsliðsmenn Bandaríkjanna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.