Fotbolti.net
30.06.26 - 18:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Struijk frá Leeds til Brighton (Staðfest)

Struijk frá Leeds til Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Brighton

Pascal Stuijk er genginn til liðs við Brighton frá Leeds fyrir 18 milljónir punda. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Leeds greinir frá því að félagið fái ákveðna upphæð ef hann verður seldur frá Brighton.
Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum hjá Leeds og fékk nýtt mun betra samningstilboð en félagið virti ósk hans um nýja áskorun. Hann er fæddur í Belgíu en á yngri landsleiki fyrir Holland.

Það kemur fram í yfirlýsingu frá Leeds að félagið sé mjög vel statt varðandi fjárhagsreglur úrvalsdeildarinnar eftir frábæran árangur í fyrra og söluna á Strujik. Liðið var nýliði og hafnaði í 14. sæti og fór alla leið í undanúrslit enska bikarsins.

„Pascal er nákvæmlega sú tegund af leikmanni sem við vildum bæta við hópinn í sumar, þar sem hann hefur góða reynslu úr úrvalsdeildinni og á sín bestu ár framundan," sagði Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

„Hann sýndi virkilega hvað hann er fær um á síðasta tímabili - frábærar varnaraðgerðir og rólegur með boltann - og stíll hans hentar okkar vel. Hann er frábær viðbót við hópinn og ég hlakka til að vinna með honum.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.