Fotbolti.net
29.06.26 - 12:22
Elvar Geir Magnússon

Hemmi rekinn frá Val (Staðfest) - Dóri Árna tekur við eftir tímabilið

Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn taka pokann sinn.

Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn taka pokann sinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari Vals og mun Chris Brazell, aðstoðarmaður hans, stýra liðinu út tímabilið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlíðarendafélaginu.

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, tekur svo við Valsliðinu þann 1. nóvember.

Valur er í fimmta sæti Bestu deildarinnar en liðið vann Þór í gær, í síðasta leik Hermanns með stjórnartauma liðsins.
Tilkynning Vals:
Stjórn knattspyrnudeildar Vals hefur ákveðið að gera breytingar á þjálfarateymi meistaraflokks karla. Hermann Hreiðarsson hefur látið af störfum sem aðalþjálfari liðsins og mun Christopher Brazell og þjálfarateymið stýra liðinu út keppnistímabilið. Jafnframt hefur Valur gengið frá ráðningu Halldórs Árnasonar sem tekur við starfi aðalþjálfara 1. nóvember næstkomandi.

„Eftir ítarlegt mat á stöðunni er það niðurstaða okkar í stjórn að gera þessa breytingu núna. Við þökkum Hemma fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum alls hins besta,“ segir Styrmir Þór Bragason, formaður knattspyrnudeildar Vals.

Christopher Brazell, sem verið hefur aðstoðarþjálfari liðsins, mun stýra liðinu út yfirstandandi tímabil ásamt þjálfarateyminu.

„Chris er góður þjálfari sem þekkir bæði leikmannahópinn og félagið vel. Hann hefur á stuttum tíma orðið mikilvægur hluti af því sem við erum að gera og við erum honum afar þakklát fyrir að taka að sér þetta verkefni á þessum tímapunkti. Nú snýst þetta um að þjappa hópnum saman, ná fram því besta og klára tímabilið af krafti. Við höfum fulla trú á strákunum í því verkefni.“

Samhliða þessum breytingum hefur Valur gengið frá ráðningu Halldórs Árnasonar sem næsta aðalþjálfara liðsins.

„Ég held að allir sem fylgst hafa með íslenskum fótbolta viti hversu öflugur þjálfari Halldór Árnason er. Samningurinn er til fimm ára og það sem er óvenjulegt er að hvorugur aðili getur sagt honum upp fyrstu átján mánuðina. Slík ákvæði eru afar sjaldgæf í íslenskum fótbolta en endurspegla það traust sem ríkir á milli aðila og þá sameiginlegu sýn sem við höfum á verkefnið. Við erum að taka ákvarðanir fyrir framtíðina og þessi ráðning endurspeglar það,“ segir Styrmir.

Halldór hefur sannað sig sem einn færasti þjálfari landsins en hann gerði m.a. Breiðablik eftirminnilega að Íslandsmeisturum árið 2024 og stýrði liðinu í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

„Ég lít á þetta sem mikinn heiður og viðurkenningu á því sem ég stend fyrir sem þjálfari. Valur er eitt stærsta og sögufrægasta félag landsins og ég hef fylgst með og heillast af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað á Hlíðarenda. Við höfum átt góð samtöl og ég finn að sýn okkar á leikinn, leikmannaþróun og uppbyggingu félagsins fer mjög vel saman. Ég er virkilega spenntur fyrir því að hefja störf og láta til mín taka,“ segir Halldór.

Halldór mun ekki taka við liðinu fyrr en að loknu yfirstandandi tímabili.

„Það er auðvitað engin óskastaða að gera breytingar á þjálfarateyminu á þessum tímapunkti en þegar ljóst var að Halldór væri klár þá töldum við best að hann kæmi ekki inn fyrr en að loknu tímabili. Á sama tíma þykir okkur mikilvægt að skapa ákveðinn skýrleika um framtíðina. Nú vita allir hvernig þetta verður hjá okkur og það mun hjálpa okkur í því verkefni sem við erum með í höndunum,“ segir Styrmir.

Halldór Árnason mun ekki veita viðtöl vegna ráðningarinnar fyrr en hann hefur formlega störf hjá félaginu 1. nóvember næstkomandi.
Chris Brazell stýrir liðinu út tímabilið.

Chris Brazell stýrir liðinu út tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason.

Halldór Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7ÍBV14-715
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.