Fotbolti.net
30.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Leggur landsliðshanskana á hilluna í annað sinn (Staðfest)

Leggur landsliðshanskana á hilluna í annað sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Manuel Neuer lék sinn síðasta landsleik með Þjóðverjum er þeir duttu óvænt út í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær.
Hinn fertugi Manuel Neuer lagði landsliðshanskana á hilluna eftir síðasta Evrópumót.

Hann var hins vegar stórkostlegur með Bayern München á nýafstaðinni leiktíð og lét undan sannfæringarkrafti Julian Nagelsmann, sem fékk hann til að snúa aftur á milli stanganna hjá Þjóðverjum.

Frammistaða Neuer og liðsfélaga hans var hins vegar langt undir væntingum á heimsmeistaramótinu. Þjóðverjar töpuðu fyrir Ekvador í lokaumferð riðlakeppninnar og síðan gegn Paragvæ í 32-liða úrslitunum.

Nú eru hanskarnir aftur komnir upp í hillu, líklega í síðasta sinn, en Neuer kvaddi stuðningsmenn í Boston í nótt.

Hann lék 128 landsleiki fyrir Þýskaland og varð heimsmeistari með liðinu árið 2014.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.