Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24384 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.04.2026, 08:00

„Guðfaðir” Messi tekinn við Inter Miami (Staðfest)

Bandarísku meistararnir í Inter Miami voru ekkert að flækja hlutina við ráðningu á nýjum þjálfara en það kemur Argentínumaður í stað Argentínumanns. Guillermo Hoyos er tekinn við af Javier Mascherano sem sagði upp störfum vegna persónulegra ástæðna.

FRÉTTIR14.04.2026, 13:14

Iraola hættir hjá Bournemouth í sumar (Staðfest) - Orðaður við Athletic Bilbao

Andoni Iraola lætur af störfum sem stjóri Bournemouth í sumar en viðræður um nýjan samning skiluðu ekki árangri. Iraola hefur sterklega verið orðaður við Athletic Bilbao en Ernesto Valverde tilkynnti í síðasta mánuði að hann myndi láta af störfum hjá Bilbæingum eftir tímabilið. Iraola er fyrrum leikmaður Bilbao og lék með liðinu í tólf ár.

FRÉTTIR14.04.2026, 06:00

Snýr aftur í Kára (Staðfest) - Albert ætlar að spila

Jóhannes Breki Harðarsson hefur fengið félagaskipti úr KFG í Kára og mun spila á Akranesi í 2. deildinni í sumar. Jói Breki, sem er 22 ára, lék síðast með Kára árið 2021 í 2. deildinni. Hann hefur spilað á ferlinum með ÍA, Kára, Ægi og KFG, en einnig á hann tvo leiki með U-16 liði Íslands. Jóhannes Breki er sóknarsinnaður leikmaður sem verður spennandi að fylgjast með í sumar.

FRÉTTIR13.04.2026, 21:23

Róbert Quental í HK (Staðfest)

HK er búið að staðfesta félagaskipti Róberts Quental Árnasonar til sín úr röðum Leiknis R. þar sem hann hefur verið í mikilvægu hlutverki undanfarin ár.

FRÉTTIR13.04.2026, 07:30

Fram skiptir um framherja (Staðfest)

Fram hefur samið við bandaríska framherjan Taylor Hamlett um að leika með liðinu í Bestu deild kvenna í sumar. Taylor er 23 ára gömul og kemur frá FHL þar sem hún lék seinni hluta síðasta sumar og skoraði þar þrjú mörk í sjö leikjum. Taylor hefur þegar hafið æfingar með liðinu í æfingaferð á Tenerife og komið virkilega vel inn í hópinn.

FRÉTTIR10.04.2026, 16:40

Valur kaupir Sigrúnu Ísfold (Staðfest)

Valur hefur fest kaup á Sigrúnu Ísfold Valsdóttur frá HK. Sigrún, sem er fædd árið 2009, gengur til liðs við Hlíðarendafélagið eftir að hafa spilað tólf leiki með HK í Lengjudeildinni á síðasta tímabili. Hún á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki á síðasta ári.

FRÉTTIR10.04.2026, 15:46

Markús Steinn í Fjölni (Staðfest)

Markús Steinn Markan Ásmundsson, sem fæddur er árið 2008, er kominn til Fjölnis frá Breiðabliki þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins. Fjölnir féll úr Lengjudeildinni í fyrra en stefnir á að staldra ekki lengi við í 2. deildinni.

FRÉTTIR10.04.2026, 15:41

Fylkir kaupir Tuma Fannar frá Breiðabliki (Staðfest)

Fylkir hefur fest kaup á Tuma Fannari Gunnarssyni frá Breiðabliki. Hann skrifar undir samning til tveggja ára við Fylki. Breiðablik er með endurkaupsákvæði á leikmanninum. Tumi, sem er 21 árs gamall miðjumaður, lék á láni með Fylki síðasta sumar og spilaði hann alla 22 leiki liðsins í Lengjudeildinni og skoraði þar eitt mark. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net höfðu nokkur félög úr Lengjudeildinni áhuga á Tuma en Árbæingar hrepptu leikmanninn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.