Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
Carlos Queiroz stýrir Gana á HM (Staðfest)
Þetta er fimmta heimsmeistaramótið í röð sem Queiroz fer á.
Þetta er fimmta heimsmeistaramótið í röð sem Queiroz fer á.
Mynd: EPA
Portúgalinn þaulreyndi Carlos Queiroz hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Gana og mun stýra landsliðinu á HM í sumar.

Queiroz er 73 ára gamall og vann það sér helst til frægðar að vera aðstoðarþjálfari Sir Alex Ferguson hjá Manchester United í fimm ár og stýra aðalliði Real Madrid í eitt tímabil.

Hann býr yfir mikilli reynslu úr landsliðaheiminum þar sem hann stýrði portúgalska landsliðinu frá 2008 til 2010. Hann hefur einnig þjálfað Íran, Egyptaland, Katar, Óman, Kólumbíu, Suður-Afríku og Sameinuðu arabísku furstadæmin á ferlinum.

Queiroz tekur við af Otto Addo sem var rekinn úr þjálfarastarfinu eftir síðasta landsleikjaglugga. Addo hjálpaði Gana að tryggja sér sæti á HM en honum mistókst að koma liðinu á Afríkumótið og var rekinn eftir fjóra tapleiki í fjórum æfingaleikjum í undirbúningi Ganverja fyrir HM.

Gana er með Englandi, Króatíu og Panama í riðli á HM.

   06.12.2023 17:00
Carlos Queiroz hættur með Katara mánuði fyrir Asíumótið

Slapp
banner
banner