Tindastóll var að styrkja sig með sóknartengiliði frá Portúgal sem getur einnig spilað á báðum köntum.
Sá heitir Tiago Assis og er fæddur árið 2004. Hann flytur á Sauðárkrók eftir að hafa leikið síðast fyrir varalið Amora og Dezembro í neðri deildum portúgalska boltans.
Tiago þótti mikið efni áður fyrr og var á mála hjá U15 liði Benfica en fann sig ekki þar svo hann færði sig um set og kom meðal annars við hjá unglingaliðum Vitória SC og Estoril.
Hann gæti reynst mikilvægur liðsstyrkur fyrir Tindastól sem leikur í 3. deild og er markmið liðsins að fara upp.



