Aldís Kara Lúðvíksdóttir er búin að skrifa undir samning við Hauka eftir rúmlega þriggja ára fjarveru frá fótboltaheiminum.
Aldís Kara er fædd 1994 og á sér gríðarlega mikla reynslu að baki eftir að hafa leikið með FH og Breiðabliki áður fyrr, auk þess að hafa verið lykilleikmaður upp unglingalandsliðin.
Aldís er búin að spila með Haukum á undirbúningstímabilinu og hefur hún ekki spilað deildarleik í fótbolta síðan hún var hjá ÍH sumarið 2022.
Hún var afar markheppin áður fyrr og skoraði meðal annars 19 mörk í 28 landsleikjum. Í íslenska boltanum skoraði Aldís mest 8 mörk í 18 deildarleikjum með Breiðabliki í efstu deild sumarið 2014.
„Hún hefur bætt sig með hverjum leik sem hún spilar. Hún býr yfir miklum gæðum og mun styrkja okkur mikið sóknarlega. Einnig vil ég bæta við að ég er mjög ánægður með hugarfar hennar og þann metnað sem hún hefur sýnt síðan hún kom til okkar," segir Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari Hauka.


