Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 14. apríl 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Snýr aftur í Kára (Staðfest) - Albert ætlar að spila
Jóhannes Breki
Jóhannes Breki
Mynd: Kári
Jóhannes Breki Harðarsson hefur fengið félagaskipti úr KFG í Kára og mun spila á Akranesi í 2. deildinni í sumar.

Jói Breki, sem er 22 ára, lék síðast með Kára árið 2021 í 2. deildinni.

Hann hefur spilað á ferlinum með ÍA, Kára, Ægi og KFG, en einnig á hann tvo leiki með U-16 liði Íslands.

Jóhannes Breki er sóknarsinnaður leikmaður sem verður spennandi að fylgjast með í sumar.

Þá hefur Albert Hafsteinsson fengið félagaskipti frá ÍA í Kára. Búið var að tilkynna að Albert yrði hluti af þjálfarateymi Kára og mun hann einnig spila með liðinu í sumar.
Slapp
banner
banner