HK er búið að staðfesta félagaskipti Róberts Quental Árnasonar til sín úr röðum Leiknis R. þar sem hann hefur verið í mikilvægu hlutverki undanfarin ár.
Róbert Quental er leikinn kantmaður fæddur 2005 með sjö leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
Róbert er uppalinn hjá Leikni og kemur fram í færslu frá Breiðhyltingum að félögin náðu samkomulagi um félagaskiptin.
Því gæti Leiknir fengið leikmann og/eða greiðslu frá HK í staðinn.
HK komst í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar i í fyrra en tapaði þar gegn Keflavík. Leiknir var lengi vel í fallsæti en bjargaði sér með að næla í tíu stig úr síðustu fimm deildarleikjunum.
Róbert, sem á yfir 100 leiki að baki í meistaraflokki, gerir þriggja ára samning við HK.
„Ótrúlega spennandi leikmaður með frábæra sóknareiginleika sem mun passa inn í HK liðið. Þegar með mikla meistaraflokksreynslu og við erum ótrúlega ánægð að hann komi til HK sem næsta skref á sínum ferli," segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK.




