Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur er búið að tryggja sér þjónustu bandaríska miðjumannsins Ellie Coffield.
Ellie er 23 ára gömul og gerði frábæra hluti með Pittsburgh Panthers í bandaríska háskólaboltanum.
Hún hefur verið að æfa með Grindavík/Njarðvík síðustu daga eftir að hún kom til liðs við hópinn í miðri æfingaferð á Spáni. Ellie var fljót að koma sér inn í liðið og skoraði í fræknum sigri gegn stórveldi Breiðabliks á dögunum.
„Það er sama hvern þú spyrð um Ellie Coffield, þarna er á ferðinni algjört toppeintak. Við erum himinlifandi með að hafa fengið hana til liðs við okkur. Ellie er heilsteyptur leikmaður, með góðan grunn í flestöllum þáttum leiksins. Henni hentar vel að spila þann hugrakka fótbolta sem einkennir okkur. Þá hefur hún komið vel inn í hópinn eins og við var að búast," segir Gylfi Tryggvason þjálfari.
Ellie sjálf segist vera spennt fyrir að hefja meistaraflokksferilinn á Íslandi, sem er talinn vera góður stökkpallur fyrir framtíð í bæði evrópska fótboltanum og þeim bandaríska.



