Englandsmeistarar Liverpool eru búnir að staðfesta yfirvofandi brottför Andy Robertson frá félaginu.
Robertson er 32 ára vinstri bakvörður frá Skotlandi sem hefur spilað tæpa 400 leiki á níu árum í Liverpool.
Robertson er goðsögn bæði hjá Liverpool og skoska landsliðinu en hann er búinn að missa byrjunarliðssætið sitt í varnarlínu liðsins.
Robertson var næstum farinn til Tottenham í janúarglugganum en Liverpool kom í veg fyrir félagaskiptin.
Samningur bakvarðarins við Liverpool rennur út í sumar og er Liverpool búið að tilkynna að Robertson mun ekki skrifa undir nýjan samning.
We can confirm Andy Robertson will bring his Reds career to an end at the conclusion of the current season.
— Liverpool FC (@LFC) April 9, 2026
He will do so as a Liverpool legend ??



