Bandarísku meistararnir í Inter Miami voru ekkert að flækja hlutina við ráðningu á nýjum þjálfara en það kemur Argentínumaður í stað Argentínumanns. Guillermo Hoyos er tekinn við af Javier Mascherano sem sagði upp störfum vegna persónulegra ástæðna.
Mascherano hætti með Miami-liðið í dag, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa unnið MLS-bikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Inter Miami hafði hraðar hendur að finna eftirmann hans en það er Hoyos, sem hefur þjálfað út um alla Suður-Ameríku og í Grikklandi ásamt því að hafa stýrt landsliði Bólivíu.
Þetta er ansi sérstök ráðning enda ekkert með svo merkilega ferilskrá miðað við þá menn sem félagið hefur fengið síðustu ár í Mascherano, Tati Martino og Phil Neville, en það er eitt sem er þó áhugavert í þessu og það er að Hoyos þekkir mjög vel til Messi.
Hann er oft kallaður „Guðfaðir” Messi enda átti stóran þátt í að þróa leik hans á táningsárunum. Hann var þjálfari unglingaliðs Barcelona frá 2001 til 2006 og vann tvo deildartitla. Hann fattaði snema að Messi væri allt of góður til að spila með jafnöldrum sínum og spáði fyrir um að Messi yrði einn besti leikmaður allra tíma.
Hoyos þekkir hópinn ágætlega en hann var ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá Miami fyrir nokkrum mánuðum og mun yfirgefa það hlutverk í bili til að einbeita sér að þjálfun liðsins en þrjú ár eru liðin síðan hann var síðast í boðvangnum. Þá stýrði hann Oriente Petrolero í Bólivíu.
Ráðningin er aðeins tímabundin og mun Inter Miami skoða þjálfaramarkaðinn betur í sumar, enda verða töluvert stærri bitar á lausu þá en á þessum tímapunkti.
Guillermo Hoyos led his first training session as the new head coach, with the team focusing on the upcoming match in Colorado. pic.twitter.com/FGKNijQ2zk
— Inter Miami CF (@InterMiamiCF) April 14, 2026


