Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fim 09. apríl 2026 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Hættir sem yfirmaður fótboltamála í Keflavík (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Hinn króatíski Luka Jagacic er hættur hjá Keflavík eftir tæplega fjögur ár sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.

Luka flutti fyrst til Íslands fyrir meira en áratugi síðan til að spila með Selfossi í gömlu 1. deildinni, sem heitir Lengjudeildin í dag.

Hann lék einnig fyrir Njarðvík og Reyni Sandgerði áður en hann lagði skóna á hilluna og tók að einbeita sér að öðrum hliðum fótboltans.

„Ég er stoltur og hæstánægður með minn tíma hjá Keflavík. Að hafa verið hluti af þessu félagi hefur gefið mér ómetanlega reynslu og sambönd fyrir lífstíð,“ sagði Luka.


Slapp
banner
banner
banner