Bandaríski markvörðurinn Gabriel Michael Thull er genginn til liðs við Ægi í Lengjudeildinni.
Gabriel er 25 ára gamall og spilað á Íslandi síðustu ár en hann spilaði með Stokkseyri á síðasta tímabili.
Hann kom til Ægis snemma á undirbúningstímabilinu og verið mikilvægur partur af æfingahópnum.
Gabriel spilaði með Ægi í Lengjubikarnum og mun veita þeim Sigurpáli Sören Ingólfssyni og Ómari Castaldo Einarssyni samkeppni á komandi leiktíð.
Ægir komst aftur upp í Lengjudeildina síðasta haust eftir að hafa unnið 2. deild á markatölu.


