Fram hefur samið við bandaríska framherjan Taylor Hamlett um að leika með liðinu í Bestu deild kvenna í sumar.
Taylor er 23 ára gömul og kemur frá FHL þar sem hún lék seinni hluta síðasta sumar og skoraði þar þrjú mörk í sjö leikjum. Taylor hefur þegar hafið æfingar með liðinu í æfingaferð á Tenerife og komið virkilega vel inn í hópinn.

„Það er virkilega sterkt að hafa fengið Taylor til liðs við okkur og kemur hún til með að styrkja sóknarlínu okkar enn frekar í sumar og þekkir deildin vel frá síðasta tímabili. Taylor er virkilega sterkur og kraftmikill framherji sem býr yfir miklum hæfileikum, hún er mikill leiðtogi og var til að mynda fyrirliði í háskóla liðinu sínum. Við bindum miklar vonir við Taylor í sumar,” segir Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fram.
„Um leið viljum við tilkynna að Giavanna Vicari er farin aftur til Bandaríkjanna og þökkum við henni fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar í framtíðinni," segir í tilkynningu Fram en Vicari samdi við félagið ív etur.