Mats Hummels til Roma (Staðfest)
Ítalska félagið Roma hefur staðfest komu þýska varnarmannsins Mats Hummels en hann gerði eins árs samning við félagið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24407 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ítalska félagið Roma hefur staðfest komu þýska varnarmannsins Mats Hummels en hann gerði eins árs samning við félagið.
Nígeríski framherjinn Victor Osimhen er formlega genginn í raðir Galatasaray og mun leika með tyrkneska liðinu á láni frá Napoli út þetta tímabil. Í kynningarmyndbandi tyrkneska félagsins mætir Osimhen á grímuball. Osimhen er þekktur fyrir að leika með andlitsgrímu, hann þurfti að nota hana fyrir tveimur árum og hefur haldið áfram að gera það. Í lok myndbandsins sést svo Osimhen benda á Evrópudeildarbikarinn og segir svo 'we are the best' eða við erum bestir. Það gefur til kynna að stefna Galatasaray sé að vinna Evrópudeildina í vetur en liðinu mistókst að ná Meistaradeildarsæti síðasta vor. Osimhen verður í treyju númer 45 hjá Galatasaray. Í tilkynningu tyrkneska félagsins er tekið fram að félagið greiði honum 6 milljónir evra í laun fyrir tímabilið, eða rúmlega 900 milljónir íslenskra króna.

Stuart Armstrong er genginn til liðs við Vancouver Whitecaps sem leikur í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Hann skrifar undir tveggja ára samning.

Steve Bruce hefur verið ráðinn stjóri Blackpool sem leikur í ensku C-deildinni. Hann tekur við af Neil Critchley sem var rekinn eftir að liðið tapaði tveimur fyrstu leikjunum í deildinni. Liðið er með tvö stig eftir fjórar umferðir.

Jamal Lewis hefur gengið í raðir brasilíska félagsins Sao Paulo á láni frá Newcastle. Hann er fyrsti Bretinn sem gengur í raðir þessa sögufræga félags.
Wolves seldi í gær portúgalska leikmanninn Daniel Podence til sádi-arabíska félagsins Al Shabab en kaupverðið nemur um 3 milljónum punda.
Brasilíski vængmaðurinn Willian var í gær kynntur hjá gríska félaginu Olympiakos.
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við danska félagið Bröndby en hann gildir út 2025. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.
Portúgalski miðjumaðurinn Danilo Pereira er kominn til Al Ittihad frá Paris Saint-Germain og þá er félagið að ganga frá kaupum á hollenska vængmanninum Steven Bergwijn frá Ajax.
Spænski miðvörðurinn Mario Hermoso skrifaði í dag undir þriggja ára samning við ítalska félagið Roma.
Al-Nassr í Sádi-Arabíu hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi við Alex Telles um riftun á samningi. Telles er 31 árs brasilískur vinstri bakvörður sem keyptur var frá Manchester United síðasta sumar.
Hinn 23 ára gamli Issa Kabore hefur verið lánaður frá Manchester City til portúgalska félagsins Benfica. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.

Sofyan Amrabat er genginn til liðs við tyrkneska félagið Fenerbahce frá Fiorentina.

Leander Dendoncker hefur verið lánaður frá Aston Villa til Anderlecht út tímabilið.
Franski miðvörðurinn Kurt Zouma er genginn í raðir Al Orobah á láni frá West Ham en þetta staðfestu félögin í gær.
Trevoh Chalobah er mættur til Crystal Palace en hann kemur á láni frá Chelsea út tímabilið á Englandi. Chalobah er 25 ára varnarmaður sem hefur einnig spilað inn á miðsvæðinu. Hann er uppalinn hjá Chelsea og braut sér lið inn í aðalliðshóp félagsins fyrir tímabilið 2021/22 og vann strax Ofurbikar Evrópu í fyrsta leik. Alls á hann að baki 80 leiki með aðalliði Chelsea á síðustu þremur tímabilum.

Ryan Fraser gekk til liðs við Southampton á frjálsri sölu á lokadegi félagaskiptagluggans.

Frank Onyeka er genginn til liðs við Augsburg á láni frá Brentford út tímabilið.

Tammy Abraham er genginn til liðs við AC Milan á láni frá Roma út tímabilið.

Todd Cantwell er kominn til Blackburn Rovers frá Rangers í Skotlandi. Hjá Blackburn verður Cantwell liðsfélagi Arnórs Sigurðssonar. Þessi 26 ára hæfileikaríki leikmaður fer í treyju númer átta á Ewood Park. Hans uppáhalds staða er sem sóknarmiðjumaður, tía. Hann er fyrrum leikmaður Norwich og lék um stutt skeið hjá Bournemouth á lánssamningi. Blackburn er með sjö stig úr þremur fyrstu leikjum sínum í Championship-deildinni þetta tímabilið.