Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 31. ágúst 2024 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fraser til Southampton á frjálsri sölu (Staðfest)
Mynd: Southampton

Ryan Fraser gekk til liðs við Southampton á frjálsri sölu á lokadegi félagaskiptagluggans.


Þessi þrítugi leikmaður komst að samkomulagi við Newcastle að rifta samningi sínum sem gerði honum kleift að fara á frjálsri sölu til Southampton.

Hann skrifar undir tveggja ára samning við nýliðana í úrvalsdeildinni.

Fraser var á láni hjá Southampton í Championship deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann lék 44 leiki í öllum keppnum og skoraði 8 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner