Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   mán 02. september 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Man City lánar Kabore til Benfica (Staðfest)
Mynd: Benfica
Hinn 23 ára gamli Issa Kabore hefur verið lánaður frá Manchester City til portúgalska félagsins Benfica. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.

Kabore er 23 ára gamall hægri bakvörður sem kemur frá Búrkína Fasó.

Hann kom til Manchester City frá belgíska félaginu Mechelen fyrir fjórum árum en hefur ekki enn spilað fyrir aðalliðið.

Varnarmaðurinn eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Luton og spilaði 24 leiki í úrvalsdeildinni en áður var hann á láni hjá Marseille, Troyes og Mechelen.

Kabore er nú kominn til Benfica á láni út tímabilið en ekkert kaupákvæði er í samningnum.


Athugasemdir
banner