Fotbolti.net
31.08.24 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tammy Abraham til Milan (Staðfest) - Fær treyju númer 90

Tammy Abraham til Milan (Staðfest) - Fær treyju númer 90
Canon

Mynd: AC Milan

Tammy Abraham er genginn til liðs við AC Milan á láni frá Roma út tímabilið. 

Þessi 26 ára gamli framherji gekk til liðs við Roma frá Chelsea fyrir 34 milljónir punda árið 2021 og skoraði 37 mörk í 120 leikjum.

Hann var í liði Roma sem vann Sambandsdeildina undir stjórn Jose Mourinho árið 2022.

Hann mun spila í treyju númer 90 hjá Milan.

Hann hittir þar Christian Pulisic, Fikayo Tomori og Ruben Loftus-Cheek sem voru liðsfélagar hans hjá Chelsea.

Belgíski vængmaðurinn Alexis Saelemaekers er farinn í hina áttina á láni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.